Telur tölvuútboð ekki svara kostnaði 12. september 2009 01:30 akranes Tekist er á um hvort framlengja eigi samning um tölvuþjónustu bæjarins eða bjóða hana út. Minnihlutinn telur meirihlutann heykjast á samþykkt bæjarráðs um útboð.fréttalblaðið/gva
Óvíst er hvort tölvuþjónusta Akraneskaupstaðar verður boðin út, líkt og bæjarráð fól bæjarstjóra að undirbúa fyrr í sumar. Fulltrúar minnihlutans gagnrýna þetta og segja eðlilegt að þjónustan sé boðin út. Samningur er í gildi á milli bæjarins og fyrirtækisins Securstore. Það er í eigu Bjarna Ármannssonar, fyrrverandi forstjóra Glitnis, sem er stjórnarformaður, og Arnar Gunnarssonar, sonar Gunnars Sigurðssonar, forseta bæjarstjórnar. Bæjarráð ákvað í fyrra að bjóða þjónustuna út, en hætti síðan við og samdi við fyrirtækið. Á fundi sínum 30. júní fól ráðið bæjarstjóra að undirbúa útboð á tölvuþjónustu. Á næsta fundi þar á eftir var honum einnig falið að leita eftir afslætti á öllum fyrirliggjandi samningum. Sveinn Kristinsson, oddviti Samfylkingarinnar, segir ljóst á greinargerð bæjarstjóra, sem lögð var fram á fundi 3. september, að meirihlutinn ætli sér að framlengja samninginn. Þar sé útboðum fundið allt til foráttu, sem sé sérkennilegt, ekki síst á þessum sparnaðartímum. Gísli S. Einarsson bæjarstjóri segir ólíklegt að útboð mundi skila bæjarfélaginu betri kjörum. Hann segir að kostnaður við samning um hýsingu og afritun sé um sex milljónir. Þar við bætist útseldir tímar vegna annarrar þjónustu. Hann segir fyrirtækið hafa boðið 25 prósenta lækkun á samningi. Bæjarráð taki afstöðu til þess hvort farið verði í útboð en sjálfur telji hann kostnað við það of mikinn miðað við ávinning. Samfylkingin hefur farið fram á að kostnaður af samningi við Securstore sé metinn. Sveinn segir það lágmark áður en ákvörðun verði tekin um framlengingu samnings, þó að eðlilegast væri að fara í útboð. Kostnaður virðist vera um 26,5 milljónir á síðustu tólf mánuðum og samkvæmt innkaupareglum eigi því að fara í útboð. Þá segir Sveinn óljóst hvort tilætlaður sparnaður við það að hætta við útboð í fyrra hafi náðst. „Mér sýnist miðað við þær greiðslur sem farið hafa í tölvumálin að þær hafi hækkað stórkostlega, en ekki lækkað.“ Sveinn óttast að verið sé að gefa fyrirtækinu stöðu til sjálftöku úr bæjarsjóði. kolbeinn@frettabladid.is gísli s. einarsson
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Sjá meira