Misskilinn forseti Breki Logason skrifar 10. febrúar 2009 14:34 Ólafur Ragnar er duglegur við að ræða við erlenda fjölmiðla.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti hefur þrisvar sinnum þurft að leiðrétta erlendar fréttir um sjálfan sig síðan bankarnir hrundu. Ólafur hefur verið duglegur að ræða við erlenda fjölmiðla sem margir hverjir virðast misskilja orð forsetans. Nýjasta dæmið eru ummæli er varða innistæður sparifjáreigenda í Þýskalandi en áður hafði BBC misskilið forsetann sem og norskur sendiherra sem sat með honum hádegisverðarfund.Sagður hafa boðið Rússum herstöð á MiðnesheiðiÍ nóvember bárust fréttir af því að Ólafur Ragnar hefði húðskammað nágrannaþjóðir okkar á hádegisverðarfundi með erlendum erindrekum í Reykjavík.Á vef norska ríkisútvarpsins sagði að erindrekarnir hafi vart trúað sínum eigin eyrum enda hafi forsetinn komið fram með móðgandi ásakanir á hendur Bretum. Vísað var til minnisblaðs norskra yfirvalda um fundinn og bent á að fulltrúar Svíþjóðar og Danmerkur hafi setið hann.Í erlendum miðlum var því haldið fram að Ólafur hefði hótað því að leita nýrra bandamanna þar sem núverandi bandamenn hefðu svikið landið. Þá átti forsetinn að hafa viðrað þá hugmynd að Rússum yrði boðin aðstaða í gömlu herstöðinni á Keflavíkurflugvelli.Skömmu síðar bárust fréttir af því að það væri fjarri lagi að forsetinn hefði tengt viðræður íslendinga við Rússa um lán við hugsanleg afnot þeirra af fyrrverandi herstöð Bandaríkjamanna á Íslandi á umræddum hádegisverðarfundi. Það var forsetaskrifstofan sem bara þetta til baka. Skrifstofan sagði fundinn hafa farið fram í danska sendiráðinu en forsetinn ætlaði ekki að tjá sig um þær umræður sem þar hafi farið fram. Þó var tekið fram að fréttaflutningur af fundinum væri ónákvæmur.Sagður ætla í mál við BretaUm miðjan janúar sagði BBC síðan frá því að forsetinn væri enn að íhuga málsókn gegn Bretum vegna setningar hryðjuverkalaga þeirra gegn íslensku bönkunum. Þar á Ólafur að hafa sgt að Bretar hafi hagað sér eins og bullur gegn smáþjóð í aðgerðum sínum.Skömmu síðar barst leiðrétting frá Örnólfi Thorssyni forsetaritara sem sagði misskilnings hafa orðið til þess að fullyrt hefði verið að Ólafur íhugaði málsókn á hendur Bretum. Hann asgði Ólaf hafa sagt að hugleiðingar væru enn um málsókn á hendur Bretum af hálfu íslenskra aðila en ekki að forsetinn hugleiddi persónulega að höfða mál á hendur þeim.Sagður ekki hafa ætlað að greiða þýskum sparifjáreigendumÍ hádeginu í dag sagði Ólafur Ragnar síðan að þýskur blaðamaðru Financial Times hafi dregið upp mjög villandi frásögn af löngu samtali sem hann átti við forsetann á Bessastöðum en haft er eftir Ólafi í blaðinu að Ísland eigi ekki að greiða þeim sem töpuðu á innlánum Kaupþings í Þýskalandi.Ólafur segist hafa sagt blaðamanninum að Íslendingar hefðu ríkan vilja til þess að standa að málum á þann hátt að reynt verði að uppfylla að fullu skuldbindingar í öðrum löndum.Ólafur sagðist einnig hafa sagt að þýskur almenningur verði að hafa á því skilning að þúsundir Íslendinga hafi orðið fyrir gríðarlegu tapi í kjölfar hruns bankanna. Þessvegna væri það röng mynd sem stundum væri dregin upp víða í Evrópu að það væri ætlun Íslendinga að hafa allt sitt á þurru á meðan aðrir ættu að taka á sig tapið.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira