Sjóðir nálgast sömu stærð og fyrir hrun 13. nóvember 2009 06:45 Arnar Sigurmundsson.
Hrein eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris nálgast það að vera sú sama og hún var fyrir hrun. Batinn frá október 2008 er metinn af Seðlabanka Íslands á 181 milljarð króna en eignarýrnun sjóðanna við hrunið var metin 217 milljarðar króna eftir hrunið. Nýtt yfirlit Seðlabanka Íslands á eignastöðu lífeyrissjóðanna sýnir að hrein eign sjóðanna í september var 1.735 milljarðar króna en var í sama mánuði 2008 1.772 milljarðar. Strax eftir hrun, í októbermánuði 2008, var eign sjóðanna metin 1.554 milljarðar. Gögn Seðlabankans benda því til þess að bankahrunið hafi snert íslensku sjóðina minna en svartsýnustu menn óttuðust. Niðurstaðan hjá lífeyrissjóðum víða annars staðar í heiminum var verri, þó að taka verði tillit til ólíkra reikniaðferða. Talið er að lífeyrissjóðir aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar hafi séð á eftir fimmtungi eigna sinna frá byrjun árs 2008 til októberloka það ár. Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, segir það rétt að stærð sjóðanna nálgist að vera sú sama í krónum talið og hún var fyrir hrun. Hann setur þó þann fyrirvara að höggið í hruninu hafi verið þungt og tölfræði Seðlabankans um krónueign segi ekki alla söguna. „Það er hins vegar rétt að við nálgumst aftur átján hundruð milljarða markið. Stór hluti eigna sjóðanna hefur haldið áfram að skila góðri ávöxtun og það er meira borgað inn í sjóðina en greitt er út úr þeim. Það er mjög ánægjulegt að við séum að ná sömu stöðu í krónum talið og fyrir ári." Uppgjöri hrunsins í reikningum lífeyrissjóðanna er ekki lokið og nokkur óvissa ríkir því enn um endanlegt mat á eignum þeirra. Stærsta höggið var tap í hlutabréfum innanlands en á móti hafa sjóðirnir hagnast á erlendum eignum sem byggðar hafa verið upp á löngum tíma.- shá
Mest lesið „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Viðvaranir vegna hvassviðris Veður Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Erlent Fleiri fréttir Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Sjá meira