Vinnubrögð Sigrúnar Elsu og Sóleyjar sérkennileg 10. desember 2008 20:09 Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, er formaður framkvæmda- og eignaráðs Reykjavíkur.
Óskar Bergsson, formaður framkvæmda- og eignaráðs Reykjavíkur, segir að sér komi á óvart á að sama tíma og meirihlutinn í borgarstjórn bjóði minnihlutanum upp á að vinna að fjárhagsætlun með sér skuli fulltrúar minnihlutans rísa upp í miðri vinnu og gefa út yfirlýsingu líkt og gert var í dag. ,,Þetta eru sérkennileg vinnubrögð á sama tíma og maður telur sig vera í einhverju samstarfi," segir Óskar. Fyrr í dag fullyrtu Sigrún Elsa Smáradóttir og Sóley Tómasdóttir, fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna í framkvæmda- og eignaráði, að meirihlutinn í Reykjavík forgangsraðaði ekki í þágu mannaflsfrekra framkvæmda. Að þeirra mati vinnur meirihlutinn ekki eftir þeirri yfirlýstu stefnu sinni að nýta fyrirhugaða 6 milljarða lántöku borgarinnar í mannaflsfrekar framkvæmdir til að styðja við atvinnustig. ,,Ég held að oddvitar minnihlutafulltrúanna í Samfylkingu og Vinstri grænum verði að fara yfir það með sínu fólki hvort þau séu í raun og veru tilbúin að vinna að fjárhagsáætluninni sameiginlega með okkur eða hvort þetta séu merki um að þau séu að gefast upp á þeirri vinnu," segir Óskar. Sóley og Sigrún Elsa segjast margsinnis hafa farið fram á það að framkvæmdir verði greindar eftir því hversu mannaflsfrekar þær eru. Þetta vilja þær að gert verði til að hægt sé að forgangsraða þeim framkvæmdum sem kalla á mestan mannafla. Slík greining hafi ekki farið fram og ekki standi til að verða við beiðni minnihlutans um slíka greiningu. Óskar segir einfalda skýringu vera á þessum hluta málsins. ,,Eftir að þær voru nánast búnar að vera með einræðu á fundinum í morgun í þrjá klukkutíma og nýttu þann fjórða í bókanir þá var tíminn einfaldlega búinn." Aðspurður hvort þær hafi ekki áður beðið um slíka greiningu áður segir Óskar svo ekki vera. ,,Nei. Enda voru þessi gögn sem þær eru að tala um ekki á dagskrá fundarins."
Tengdar fréttir Fullyrða að ekki sé forgangsraðað í þágu mannaflsfrekra framkvæmda Meirihluti borgarstjórnar vinnur ekki eftir þeirri yfirlýstu stefnu sinni að nýta fyrirhugaða 6 milljarða lántöku borgarinnar í mannaflsfrekar framkvæmdir til að styðja við atvinnustig. Þetta segja Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, og Sóley Tómasdóttir, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna. 10. desember 2008 16:00 Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira
Fullyrða að ekki sé forgangsraðað í þágu mannaflsfrekra framkvæmda Meirihluti borgarstjórnar vinnur ekki eftir þeirri yfirlýstu stefnu sinni að nýta fyrirhugaða 6 milljarða lántöku borgarinnar í mannaflsfrekar framkvæmdir til að styðja við atvinnustig. Þetta segja Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, og Sóley Tómasdóttir, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna. 10. desember 2008 16:00