Lífið

Nýr sumarsmellur frá Bermuda

Bermuda
Bermuda

Hljómsveitin Bermuda hefur nú gefið út nýja útgáfu af lagi sem kom út á fyrstu breiðskífu þeirra, Nýr Dagur um síðustu áramót. Það er útsetningarmeistarinn Örlygur Smári sem tók lagið að sér og setti það í glænýjan og nútímalegan búning.

„Þetta er taktfast og kraftmikið danslag, og hefur orðið talsvert mikil breyting á laginu, því það er upprunalega í latin-samba útsetningu. Eitthvað af suðrænum áhrifum lifir þó af meðferðina hjá Örlygi Smára, og heyra má klassíska kassagítar tóna og lúðra, ættaða frá suðurhöfum, í endurútsetningunni," segir í fréttatilkynningu frá sveitinni.

Nýju útgáfunni hefur verið dreift á allar útvarpsstöðvarnar þannig að nú er um að gera að sperra eyrun og hlusta eftir næsta sumarsmelli ársins, Á Bermuda (sumarmix).

Hlusta á smellinn hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.