Lífið

Winehouse neitað um vísa fyrir Grammy

Amy Winehouse mun ekki koma fram á Grammy verðlaununum af því að beiðni hennar um vegabréfsáritun hefur verið neitað af sendiráði Bandaríkjanna í London. Söngkonan var sektuð fyrir að vera með kannabisefni í fórum sínum í Noregi á síðasta ári.

Talsmaður Winehouse segir að hún hefði orðið fyrir „vonbrigðum" en hún hefði „viðurkennt niðurstöðuna og muni einbeita sér að því að ná bata".

Winehouse er tilnefnd til sex Grammy verðlauna í Los Angeles á sunnudaginn.

Nú er búist við að hún troði upp í gegnum gervihnattasendingu og komi þannig fram á verðlaunahátíðinni.

Í yfirlýsingu frá herbúðum söngkonunnar er ekki tekið fram á hvaða forsendum henni var neitað um vegabréfsáritun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.