Ófært að miða hlunnindaskatt miðað vð bílverð í dag 10. desember 2008 12:19
Það er algjörlega ófært og í andstöðu við stefnu ríkisstjórnar, um að koma til móts við heimilin í landinu, að uppreikna hlunnindaskatt af bifreiðum miðað við verðlista bifreiðaumboðana eins og hann er í dag. Þetta segir Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, í bréfi sem hann hefur sent fjölmiðlum. Þar segir Özur að Ríkisskattstjóri hafi sent öllum bifreiðaumboðum landsins bréf þar sem óskað er eftir uppfærðum verðlistum á nýjum bílum. Tilgangur Ríkisskattstjóra með þessu bréfi sé að uppfæra þann grunn sem hlunnindaskattur er reiknaður útfrá í þeim tilfellum sem launþegi hefur afnot af bifreið frá vinnuveitanda sínum. Özur bendir á að enginn kaupi bifreiðar á því verði sem birtist í verðlistum eins og sölutölur sýni, hvorki fyrirtæki né einstaklingar. Verð á nýjum bílum í dag hafi hækkað á bilinu 40 til 60% vegna stöðu krónunnar. „Ef Ríkisskattstjóri fer þá leið að miða við verðlista bifreiðaumboðana eins og hann lítur út um þessar mundir mun það hafa í för með sér allt að tvöföldun á þeim skatti sem nú er innheimtur af aðilum er hafa bifreið sem hluta af kjörum sínum hjá vinnuveitanda," segir Özur Hann bendir á að Ríkisskattstjóri uppfæri þennan verðgrunn sinn einu sinni á ári þannig að allt næsta ár muni þeir aðilar sem hafi bifreiðar til umráða frá vinnuveitanda greiða hlunnindaskatt miðað við verð á bílum sem engin keypti eða mun kaupa. Það muni hafa mikil og neikvæð áhrif á fjárhag þeirra heimila sem hafa hluta af kjörum sínum í gegnum bifreiðaafnot. Bílgreinasambandið bendir á að eðlilegra sé að miða við verð eins og það var um síðustu áramót og að þessi grunnur verði endurskoðaður um mitt næsta ár nái gengi íslensku krónunnar eðlilegum stöðugleika.
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira