Innlent

Bát hvolfdi nærri Bakkafjöru

Lítill Challenger hraðbátur fór á hvolf við ósa Markárfljóts nærri Bakkafjöru nú síðdegis. Tveir menn voru í bátnum og meiddust þeir báðir lítillega. Annar þeirra var fluttur með sjúkrabíl til skoðunar á slysadeild.

Lögregla naut liðsinnis Björgunarsveitarinnar á Hellu við að bjarga bátnum, Svanur Lárusson, formaður björgunarsveitarinnar, segir að björgunaraðgerðir hafi gengið nokkuð treglega vegna þess hversu torfært er að staðnum þar sem óhappið varð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×