Zimbabwe: Svartir fá stjórn fyrirtækja 10. mars 2008 11:36 Robert Mugabe hefur verið forseti Zimbabwe í 28 ár. MYND/AFP
Robert Mugabe forseti Zimbabwe hefur undirritað ný lög sem flytja meirihluta eignarhalds allra fyrirtækja til innfæddra íbúa landsins. Nýju lögin þýða að fyrirtæki í eigu útlendinga og hvítra þurfa að afsala sér að minnsta kosti 51 prósent eignarhluts til svartra. Þingmenn samþykktu frumvarpið í september en samþykki forsetans var tilkynnt í gær í ríkisrekna dagblaðinu Sunday Mail. Tæpar þrjár vikur eru til forsetakosninga í Zimbabwe en þær fara fram 29. mars næstkomandi. Kosningarnar ógna forsetastóli Mugabe eftir að hafa ríkt í fimm kjörtímabil eða 28 ár. Þá mætir hann áhrifamiklum andstæðingum sem bjóða sig fram gegn honum, Simba Makoni mikilsmetnum stjórnmálamanni í eigin flokki og Morgan Tsvangirai leiðtoga stjórnarandstöðuflokks. Á valdatíma Mugabe hefur efnahagsástand hrapað, þar ríkir óðaverðbólga og íbúar hafa á tímum liðið bæði matar- og rafmagnsskort. Ef ráðherra þjóðnýtingarmála og breytir ekki hlutfallinu, gætu nokkrir bankar, námufyrirtæki og símafyrirtæki, auk annarra erlendra fyrirtækja, þurft að afsala sér völdum. Þegar frumvarpið var kynnt á síðasta ári lýsti það innfæddum Zimbabwebúa sem „þeirri persónu sem fyrir 18. apríl 1980, hefði orðið fyrir óhagræði vegna mismununar af völdum kynþáttar, og allir afkomendur slíkrar persónu." Zimbabwe hlaut sjálfstæði frá Bretum þann dag.
Mest lesið Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Blámóðan þyngdi róður slökkviliðsmanna Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Gosmóðan heldur áfram Innlent Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Innlent Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Innlent Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Innlent Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Erlent Fleiri fréttir Óska eftir því að vitnisburður um Epstein verði opinberaður Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Sjá meira