Innlent

Tekjuafgangur hins opinbera um 67 milljarðar í fyrra

Tekjuafgangur hins opinbera í fyrra reyndist nærri 67 milljarðar króna samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Til samanburðar reyndist tekjuafgangurinn árið 2006 um 74 milljarðar eða sjö milljörðum króna meiri. Tekjuafgangurinn í fyrra nam 5,2 prósentum af landsframleiðslu og tæpum ellefu prósentum af tekjum hins opinbera.

Tölur Hagstofunnar sýna enn fremur að tekjuafgangurinn reyndist tæplega 18 milljarðar króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs en til samanburðar var afgangurinn nærri 24 milljarðar á sama tíma árið 2006 og munar þar því nærri sex milljörðum.

Heildartekjur hins opinbera á árinu 2007 námu 617,5 milljörðum króna og hækkuðu um ríflega 10 prósent milli ára. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 48,3 prósent samanborið við 48 prósent árið 2006. Heildarútgjöld hins opinbera námu hins vegar um 551 milljarði króna eða 43,1 prósenti af landsframleiðslu og hækkuðu um 13,2 prósent frá árinu 2006. Fjárfesting hins opinbera var um 55 milljarðar króna 2007 og hækkaði verulega milli ára eða um 20 prósent.

Tekjuafkoma ríkissjóðs og almannatrygginga var jákvæð um 60,6 milljarða króna á árinu öllu samanborið við 70,1 milljarð króna árið 2006. Tekjuafkoma sveitarfélaganna var einnig jákvæð á 4. ársfjórðungi 2007 eða um 1,2 milljarða króna og því hagstæðari en á sama tíma 2006. Áætlað er að sveitarfélögin skili 5,9 milljarða króna tekjuafgangi á árinu 2007 samanborið við 3,8 milljarða króna 2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×