Sprautunálarræningi vistaður á stofnun vegna veikinda 2. apríl 2008 12:00 MYND/GVA
Hæstiréttur hefur komist að því að maðurinn sem grunaður er um þrjú rán í verslunum í Breiðholti nýlega skuli sæta vistun á viðeigandi stofnun í stað gæsluvarðhalds þar sem hann glími við geðsjúkdóm. Héraðsdómur hafði úrskurðað hann í gæsluvarðhald til 18. apríl en samkvæmt ákvörðun Hæstaréttar skal hann fremur vistaður á viðeigandi stofnun í jafnlangan tíma. Maðurinn réðst inn á þremur stöðum á þremur dögum vopnaður sprautunál og rændi fjármunum. Hann var handtekinn skömmu síðar ásamt tveimur öðrum en þeim hefur verið sleppt. Í úrskurði Hæstaréttar kemur fram að maðurinn sé fíkniefnaneytandi og eigi langa sögu um geðrofssjúkdóm. Hann hafi verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum. Þá kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur að rannsókn mála mannsins sé á lokastigi. Brotaferill mannsins hafi verið samfelldur og sé það mat lögreglustjóra að hann muni halda áfram afbrotum verði hann látinn laus. Þá sé maðurinn sterklega grunaður um að hafa framið afbrot sem varðað geti að lögum allt að 16 ára fangelsi og sé í eðli sínu svo svívirðileg að almannhagsmunir krefjist þess að hann sæti áfram gæsluvarðhaldi.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira