Dagvaktin bjargaði sveitinni um tvær símstöðvar 2. apríl 2008 10:29
Upptökur á sjónvarpsþáttunum Dagvaktinni á Hótel Bjarkarlundi í Reykhólasveit hafa þær ánægjulegu afleiðingar fyrir íbúana þar að tvær farsímastöðvar verða settar þar upp. Þriggja ára barátta íbúanna fyrir því að fá farsíma- og tölvutengingu hjá Símanum hafði engan árangur borið fyrr en ákveðið var að taka upp Dagvaktina þar. Árni Sigurpálsson, eigandi Hótel Bjarkalundar, segir að Vodafone eigi heiður skilið fyrir að hafa sett upp símstöð við hótelið núna en samkvæmt áætlunum átti slíkt ekki að gerast fyrr en síðar í sumar. „Ég er búinn að standa í stappi við Símann um að koma upp farsímasambandi hér í sveitinni undanfarin þrjú ár en ekkert hefur gengið," segir Árni. „Þar að auki eru landlínurnar allar meira og minna ónýtar og því oft símasambandlaust hér. Nú ætlar Síminn hins vegar að setja upp stöð hér á morgun þannig að allt í einu er sveitin komin með tvær farsímastöðvar." Árni segir að hann skilji ekki af hverju símfyrirtækin tvö hafi ekki sameinast um eina stöð. „Þetta er allt furðulegt og með ólíkindum," segir Árni. „Samkvæmt útboði sem efnt var til átti Vodafone að setja upp stöð hér seinna í sumar en þeir ákváðu að flýta þeirri framkvæmd vegna upptöku á sjónvarpsþáttunum. Og ég vil segja að Vodafone á heiður skilinn fyrir að hafa flýtt framkvæmdum sínum." Upptökur á Dagvaktinni munu hefjast á Hótel Bjarkalundi í kringum 10. apríl og segir Árni að þá verði allt tilbúið til taka á móti stjörnunum. Og ekki ætti fólkið að verða í neinum vandræðum með símasambandið.
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Erlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Fleiri fréttir Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Sjá meira