Mótmæla lítilli hækkun lífeyris 28. mars 2008 15:49 Gylfi Arnbjörnsson.
Alþýðusamband Íslands, Öryrkjabandalag Íslands og Landssamband eldri borgara mótmæla harðlega þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hækka elli- og örorkulífeyri um einungis kr. 4.000 - 5.000 í kjölfar nýgerðra kjarasamninga. „Við erum mjög ósátt. Okkur finnst þessi ákvörðun skjóta algjörlega skökku við það sem hefur verið í umræðunni. Sá hópur sem stendur hvað höllustum fæti ber minnst úr býtum. Kjarasamningar tryggja að lægstu laun í landinu hækki um 18.000 krónur og við væntum þess að lægstu bætur almannatrygginga hækki þá a.m.k. jafnmikið. Ég skil ekki hvernig menn útskýra það að þessi hópur fái bara fjögur til fimm þúsund króna hækkun," sagði Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ í samtali við Vísi. Í fréttatilkynningu frá ofangreindum samböndum segir enn fremur: „Meginmarkmið verkalýðshreyfingarinnar í nýgerðum kjarasamningum var að bæta kjör þeirra verst settu í þjóðfélaginu og í samræmi við það náðu aðildarsamtök ASÍ og SA samkomulagi um hækkun lægstu launa um 18.000 kr. á mánuði. Við frágang kjarasamninga var talað um sögulegt samkomulag og almenn sátt og ánægja ríkti í samfélaginu um þá leið sem farin var, enda lýsti ríkisstjórnin sérstaklega yfir ánægju sinni með þessar áherslur. Óskiljanleg niðurstaða Það þarf enginn að fara í grafgötur með að fjöldi fólks í hópi öryrkja og aldraðra eru meðal þeirra sem lægstar hafa tekjurnar í okkar þjóðfélagi. Það skýtur því algerlega skökku við að bætur lífeyrisþega eigi í kjölfar nýgerðra kjarasamninga aðeins að hækka um 4%, sem jafngildir kr. 4.000 - 5.000 hækkun á lægstu bótum. Hvernig ríkisstjórnin getur komist að þeirri niðurstöðu að 18.000 króna hækkun lægstu launa á vinnumarkaði samsvari hækkun bóta almannatrygginga um 4.000 - 5.000 kr. á mánuði er óskiljanlegt. Sú upphæð er eins og við blasir aðeins lítill hluti þess sem samið var um í kjarasamningunum. Það er því ljóst að ríkisstjórnin er með þessari ákvörðun sinni að ganga þvert gegn grundvallaráherslu og markmiðum kjarasamninganna - markmiðum sem hún áður hafði tekið undir og samþykkt. Með ákvörðun sinni er ríkistjórnin að svipta lífeyrisþega mikilvægum og nauðsynlegum kjarabótum. Alþýðusambandið, Öryrkjabandalagið og Landssamband eldri borgara krefjast þess að ríkisstjórnin standi við fyrri yfirlýsingar sínar og hækki bætur almannatrygginga til jafns við kjarasamninga - það þýðir hækkun um kr. 18.000 á mánuði fyrir þá sem eru á lægstu bótum."
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja Sjá meira