Var Ingólfur Arnarson til? 27. mars 2008 13:26 Landnámsskálinn í Aðalstræti sem eignaður hefur verið Ingólfi Arnarsyni.
Voru Ingólfur Arnarson og hans fólk yfirleitt til? er meðal spurninga sem Helgi Þorláksson sagnfræðingur hyggst varpa fram og ræða í fyrirlestri sínum um Reykvíkinga á 9. og 10. öld sem haldinn verður á landnámssýningunni í Aðalstræti nk. þriðjudag sem hluti af fyrirlestraröð er senn lýkur um fornleifar í Reykjavík og lífið á landnámsöld. „Það er ósköp lítið vitað um Ingólf annað en nafnið og það sem Íslendingabók segir um hann. Þar segir að hann hafi verið fyrstur landnámsmanna til að koma til Íslands frá Noregi en við höfum vitneskju um að fólk hafi verið á ferð í Reykjavík fyrir 871 þótt við viljum ekki tortryggja Ara [fróða Þorgilsson] um allt, sumt getur verið rétt hjá honum og átt sér samsvörun," segir Helgi. Hann segir þetta þó ekki segja okkur ýkjamikið um þennan fyrsta landnema í Reykjavík sem kallaður er Ingólfur, hugmynd Helga sé að fjalla almennt um það í fyrirlestri sínum hvernig afstaða til heimilda hefur breyst, hvernig hugmyndir um landnemana hafa breyst og hvað það sé núna sem við höfum helst að styðjast við um líf og kjör fólks í Reykjavík á 9. og 10. öld. „Á hinni eiginlegu landnámssýningu þar sem skáli frá 10. öld er aðalatriði og fjallað er um landnámið koma Ingólfur og Hallveig [Fróðadóttir] ekkert við sögu fyrr en við útganginn þar sem þau eru nefnd lítillega. Það er því kannski nokkurt nýnæmi hvernig staðið er að þessu. Ritheimildirnar eru ekki látnar ráða ferðinni með sama hætti og áður heldur á nýjan hátt. Það er það sem ég ætla að útskýra í fyrirlestrinum," segir Helgi að skilnaði.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Fleiri fréttir Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Sjá meira