Skiljanleg og rökrétt ákvörðun Seðlabankans 25. mars 2008 11:37
Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segja þá ákvörðun Seðlabankans að hækka stýrivexti í morgun skiljanlega og rökrétta í ljósi þróunar mála. Ráðherrarnir ræddu við fréttamenn eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Þar sagði Geir að staða efnahagsmála væri ekki komin á það stig að það kallaði á aðgerðir að hálfu ríkisstjórnarinnar. Seðlabankinn hefði sjálfstættt gripið til sinna aðgerða sem væru farnar að skila árangri. Vísaði Geir þar til styrkingar krónunnar og hækkunar á hlutabréfamörkuðum. Þá ýjaði Geir að því að stjórnvöld hygðust gefa út skuldabréf, það yrði samstarf ríkisstjórnar og Seðlabankans og greint yrði frekar frá því síðar í dag. Neyðarviðbrögð við ástandinu Geir benti enn fremur á að dagurinn í dag væri aukavaxtaákvörðunardagur og um væri að ræða neyðarviðbrögð við ástandinu. „Allir seðlabankar í heiminum, þar á meðal okkar, hafa verið að gera sitt til þess að bjarga lausafjárstöðunni," sagði Geir. Geir var enn fremur spurður út í hátt skuldatryggingarálag íslensku bankanna. Hann sagði það út í hött og í engum tengslum við raunveruleikann. Til skoðunar væri að ríkið tæki lán til að auka gjaldeyrisforða Seðlabankans. Aðspurður sagði Geir að ástandið í efnahagsmálum væri vissulega alvarlegt að því leyti að alþjóðlegur hörgull á fjármagni væri farinn að segja til sín hér. Þetta væru áhrif utan úr heimi sem íslensk stjórnvöld hefðu ekki getað stjórnað. Íslensk stjórnvöld myndu þó gera það sem þyrfti að gera þegar tilefni væri til þess. Enn fremur sagði forsætisráðherra ekkert sérstakt bjargráð í því að lækka álögur á eldsneyti eins og farið hefur verið fram á. Eldsneytisgjöld væru tekjustofn til Vegagerðar sem þó stæði aðeins undir hluta framkvæmda. Skýr skilaboð frá Seðlabankanum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra tók undir með Geir að ákvörðun Seðlabankans væri skynsamleg. Bankinn væri að senda skýr skilaboð um að hann ætlaði sér að hafa stjórn á efnahagsmálum. Þá benti Ingibjörg Sólrún á að það væri ekkert einsdæmi að stýrivextir væru svo háir, þeir hefðu verið 19 prósent í Bandaríkjunum um tíma. Ingibjörg Sólrún var spurð út í upplýsingagjöf sendiráða í tengslum við fréttir af íslensku efnahagslífi. Hún sagði Íslendinga eiga að hluta til í ímyndarvanda erlendis en sendiráðin væru vel í stakk búin til þess að að gefa erlendum aðilum upplýsingar um stöðu mála.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Fleiri fréttir Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásynd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Sjá meira