Vélsleðamenn hvattir til að fara varlega um páskana 18. mars 2008 09:32 MYND/Þök
Það sem af er þessu ári hafa 35 vélsleðaslys orðið hér á landi og eru þau alls 385 síðustu tíu ár. Þetta kemur fram í samantekt Sjóvar Forvarnahúss sem hvetur ökumenn vélsleða til þess að fara varlega nú um páskana. Bent er á að nú séu kjöraðstæður til að nota þessi tæki en því miður verði oft slys og óhöpp sem koma hefði mátt fyrir. Mikil aukning hefur orðið á vélsleðaeign landsmanna að undanförnu og samkvæmt tjónaskýrslum Sjóvár verða flest óhöppin á vélsleðum við það að aka á jarðfasta hluti eins og grjót og íshellur. Flest og alvarlegustu slysin á vélsleðamönnum verða hins vegar þegar ekið er fram af hengju og þá oft í slæmu skyggni og oft er ekið of hratt miðað við aðstæður. Vélsleðamenn eru hvattir til að fara sér hægar þegar skyggni er takmarkað og aka í samræmi við það. Sjóvá vísar í tölur lögreglunnar sem sýna að frá árinu 2000 hafi sex manns látist í vélsleðaslysum og síðustu tíu ár hafa 385 einstaklingar slasast. Á sama tímabili voru skráð tæp 800 óhöpp á vélsleðum eða að meðaltali um 80 óhöpp á ári. Flest óhöppin verða milli kl. 14 og 17 og algengasti hópurinn sem lendir í óhappi á vélsleðum er aldurinn 21-35 ára.Bent er á að ökumönnum vélsleða beri samkvæmt lögum að nota hlífðarhjálm. „Það hefur sýnt sig að notkun öryggishjálms hefur komið í veg fyrir alvarleg slys. Mörg slys hafa orðið við það að ökumaður kastast fram á sleðann og fær slæmt högg á líkamann, því er mikilvægt að klæðast sérstakri hlífðarbrynju sem hlífir bringu og baki við höggi," segir í tilkynningu Sjóvár.Þá eru vélsleðamenn hvattir til að undirbúa ferðir vel og láta alltaf vita hvert förinni er heitið, hvenær ráðgert er að koma til baka og ef einhverjar breytingar verða á ferðaáætluninni. Ef veður breytist skyndilega sé mikilvægt að halda hópinn og stoppa reglulega til að kanna hvort allir séu með. Verði einhver viðskila sé best að halda kyrru fyrir og jafnvel grafa sig í fönn.Sjóvá bendir enn fremur á að sömu reglur gilda um tryggingar á bílum og vélsleðum, það er skylt er að hafa þá skráða og tryggða.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Sjá meira