Foreldrafærni til að fyrirbyggja líkamlegar refsingar 18. mars 2008 09:00 Bragi Guðbrandsson.
Það er tímabært að marka nýja stefnu í velferðarmálum barna með því að efla hæfni foreldra í stað þess að einblína á börn og vanda þeirra, að sögn Braga Guðbrandssonar, forstöðumanns Barnaverndarstofu. Fyrir um tveimur árum var Bragi skipaður í sérfræðingahóp til að fjalla um foreldrahæfni í nútíma samfélagi. Var nefndinni einkum falið að undirbúa stefnumótun til eflingar foreldrafærni í þeim tilgangi að fyrirbyggja og vinna gegn líkamlegum refsingum á börnum og stuðla að þroskavænlegum uppeldisaðferðum í anda meginreglna Barnasamnings Sameinuðu þjóðanna. Í frétt sem birtist um málið á vefsíðu Barnaverndarstofu segir að breyttur veruleiki barna í uppvextinum frá því sem áður hafi verið kalli á endurmat á hefðbundnum uppeldisaðferðum þar sem barnið og þarfir þess þurfi að vera í brennipunkti. Síðastliðið sumar kynnti ríkisstjórnin svo aðgerðaráætlun í málefnum barna. Sú aðgerðaráætlun byggir að miklu leyti á því að efla hæfni fólks sem foreldrar, í takt við tilmæli sem ráðherranefnd Evrópuráðsins beindi til aðildarríkja sinna nýverið. Í gær hélt Barnaverndarstofa ráðstefnu í tengslum við þessa áætlun um foreldrafærni og hvernig hægt sé að efla hana. „Við fengum til okkar ástralskan sérfræðing sem heitir Alan Ralph og annan sérfræðing frá Noregi. Svo voru sex Íslendingar sem kynntu okkur það sem er í gangi hérna heima," segir Bragi. Hann segist vonast til þess að hægt verði að fara af stað með og efla ólíkar þjálfunarleiðir sem geti nýst fólki vel í uppeldi hér á landi. Þær þjálfunarleiðir sem um ræðir eru meðal annars SOS - Hjálp fyrir foreldra, sem mikið hefur verið notuð í Reykjanesbæ og PMT sem Hafnafjarðarbær hefur mikið notað. „Það er að því stefnt að framboðið á þessum námskeiðum verði aðgengilegt öllu fólki óháð búsetu og efnahag," segir Bragi.
Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Sjá meira