Innlent

Foreldrafærni til að fyrirbyggja líkamlegar refsingar

Bragi Guðbrandsson.
Bragi Guðbrandsson.

Það er tímabært að marka nýja stefnu í velferðarmálum barna með því að efla hæfni foreldra í stað þess að einblína á börn og vanda þeirra, að sögn Braga Guðbrandssonar, forstöðumanns Barnaverndarstofu.

Fyrir um tveimur árum var Bragi skipaður í sérfræðingahóp til að fjalla um foreldrahæfni í nútíma samfélagi. Var nefndinni einkum falið að undirbúa stefnumótun til eflingar foreldrafærni í þeim tilgangi að fyrirbyggja og vinna gegn líkamlegum refsingum á börnum og stuðla að þroskavænlegum uppeldisaðferðum í anda meginreglna Barnasamnings Sameinuðu þjóðanna. Í frétt sem birtist um málið á vefsíðu Barnaverndarstofu segir að breyttur veruleiki barna í uppvextinum frá því sem áður hafi verið kalli á endurmat á hefðbundnum uppeldisaðferðum þar sem barnið og þarfir þess þurfi að vera í brennipunkti.

Síðastliðið sumar kynnti ríkisstjórnin svo aðgerðaráætlun í málefnum barna. Sú aðgerðaráætlun byggir að miklu leyti á því að efla hæfni fólks sem foreldrar, í takt við tilmæli sem ráðherranefnd Evrópuráðsins beindi til aðildarríkja sinna nýverið. Í gær hélt Barnaverndarstofa ráðstefnu í tengslum við þessa áætlun um foreldrafærni og hvernig hægt sé að efla hana.

„Við fengum til okkar ástralskan sérfræðing sem heitir Alan Ralph og annan sérfræðing frá Noregi. Svo voru sex Íslendingar sem kynntu okkur það sem er í gangi hérna heima," segir Bragi. Hann segist vonast til þess að hægt verði að fara af stað með og efla ólíkar þjálfunarleiðir sem geti nýst fólki vel í uppeldi hér á landi.

Þær þjálfunarleiðir sem um ræðir eru meðal annars SOS - Hjálp fyrir foreldra, sem mikið hefur verið notuð í Reykjanesbæ og PMT sem Hafnafjarðarbær hefur mikið notað. „Það er að því stefnt að framboðið á þessum námskeiðum verði aðgengilegt öllu fólki óháð búsetu og efnahag," segir Bragi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×