Óvissa um rekstur göngudeildar SÁÁ 10. mars 2008 11:06 Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi. MYND/Heiða
Óvissa ríkir um göngudeild SÁÁ í Reykjavík og Akureyri þar sem ekki eru til fjármunir hjá félaginu út árið. Áttatíu milljónir þarf til að veita fulla þjónustu. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segist trúa því að unnið sé að málinu innan ríkisstjórnarinnar en að svör þurfi að fást innan tveggja mánaða. Þjónustusamningur var gerður fyrir áramót um rekstur sjúkrahúss SÁÁ, Vog, og nú í febrúar um rekstur meðferðarheimila að Vík og Staðarfelli. Að sögn Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis á SÁÁ, er líklega búið að tryggja rekstur þeirra í fjögur ár. Hins vegar er ósamið um rekstur göngudeilda SÁÁ í Reykjavík og á Akureyri. Þórarinn segir göngudeildirnar skipta gríðarlega miklu máli. „Á göngudeildinni höfum við fjölskylduþjónustu og viðtalsþjónustu fyrir þá sem ekki hafa verið á Vogi og svo erum við að fylgja eftir fólki sem verið hefur í meðferð," segir Þórarinn og segir þúsundir nýta sér þjónustuna. „Við trúum því að menn séu að vinna að málinu innan ríkisstjórnarinnar. Þetta varðar líkindum bæði heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytið en þar eru að eiga sér ýmsar breytingar," segir Þórarinn og vísar til þess að til stendur að koma á fót sérstarki stofnun sem skilgreiningir og kaupir heilbrigðisþjónustu. „Við gerum okkur vonir um að í öllu þessu verði fundin lausn á þessum málum," segir Þórarinn. Ekki á vísan að róa fyrir SÁÁ Aðspurður hvort fjármunir séu fyrir hendi til að reka göngudeildirnar eitthvað áfram segir Þórarinn að það sé spurning hversu mikla áhættu menn vilji taka í rekstri. Samtökin hafi fengið fjármuni hjá borginni en þeir dugi ekki lengi. „Vandi okkar er sá að ekki er á að vísan að róa fyrir okkur eins og opinberar stofnanir. Við verðum því að finna fé til að borga halla, annars söfnum við bara skuldum," segir Þórarinn og bætir við að það sé alltaf alvarlegt mál þegar menn hafi áhyggjur af rekstrinum. Það þekki menn til dæmis á Landspítalanum. Aðspurður hversu lengi SÁÁ geti beðið eftir svörum segir Þórarinn að hlutirnir geti ekki gengið svona lengi. „Við þurfum að fá einhver svör á næstu einum eða tveimur mánuðum," segir Þórarinn. Um áttatíu milljónir þurfi til að leysa vandann á þessu ári. „Það verður ekki gert nema málið verði tekið upp í ríkisstjórn og svo verður heilbrigðisráðuneytið að leysa vandann til lengri tíma í næstu fjárlögum," segir Þórarinn.
Mest lesið Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Erlent Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Erlent Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Innlent Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Erlent „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Innlent „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ Innlent Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Innlent Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Erlent Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal Innlent Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Innlent Fleiri fréttir Hundruð kvenna einmana: „Er skrýtið að eiga engar vinkonur?“ Ekið á ökumann rafmagnshlaupahjóls og gámur á hliðina Gosmóða mælist í morgunsárið en ætti að minnka með deginum Viðbragðsaðilar kallaðir út vegna elds í sanddæluskipi á Ísafirði Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ 250 þúsund gestir skemmtiferðaskipa á Akureyri í sumar „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Útgerðin misst tengsl við almenning og ómögulegt að fá greiðslumat Tengist ekki skuggaflota Rússlands Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar Sjá meira