24 metrar af stuðningsmönnum litaðs bensíns Breki Logason skrifar 7. mars 2008 10:41 Atlantsolía stendur fyrir undirskriftarlistanum. „
Við erum bara að reima á okkur skóna og á leið þarna niðureftir," segir Hugi Hreiðarsson markaðsstjóri Atlantsolíu sem ætlar að afhenda Fjármálaráðuneytinu 24 metra langan undirskriftarlista til stuðnings sölu á lituðu bensíni í dag. Fyritækið vill hefja sölu á lituðu bensíni en það yrðir ódýrara en annað bensín þar sem 32,95 krónu veggjald yrði fellt niður, enda bensínið ekki ætlað fyrir almennar bifreiðar. Hátt í fimm þúsund manns hafa skráð sig á listann sem hefur verið í gangi í 19 daga. „Þetta gekk náttúrulega með ólíkindum enda höfum við ekki sent eina einustu auglýsingu frá okkur um málið. Þetta spurðist bara út og greinilegt að menn vilja sjá þetta gerast," segir Hugi. Hann segir björgunarsveitarmenn, mótorkrossmenn og flugvélaeigendur vera stærsta hlutann en inn á milli séu auðvitað aðrir enda nýtist litað bensín m.a. á sláttuvélar, vélsleða, rafstöðvar og skemmtibáta. Einungis vantar 30 undirskriftir svo listinn nái 5000 einstaklingum og reiknar Hugi með að fimmþúsundasti stuðningsmaðurinn skrái sig í dag. „Það er aldrei að vita nema sá fái fría áfyllingu hjá okkur." Undirskriftarlistinn er prentaður á samhangandi pappír sem nær 24 metrum að sögn Huga en árangurinn kom forsvarsmönnum Atlantsolíu mjög á óvart. Það verður Ingvi Már Pálsson, formaður nefndar sem vinnur að endurskoðun skattlagningar á eldsneyti sem tekur við listanum núna klukkan 11:00. Hægt er að skrá sig á listann hér.
Mest lesið Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Erlent Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Innlent „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ Innlent Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Innlent „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Innlent Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal Innlent Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Innlent Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Erlent Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Erlent Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Innlent Fleiri fréttir Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ 250 þúsund gestir skemmtiferðaskipa á Akureyri í sumar „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Útgerðin misst tengsl við almenning og ómögulegt að fá greiðslumat Tengist ekki skuggaflota Rússlands Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Sjá meira