Eitra fyrir 100 þúsund hundum 6. mars 2008 15:53 Kona ekur framhjá bíl þar sem búið er að setja flækingshunda í búr í Bangalore. MYND/AFP
Yfirvöld í Kashmír héraði á Indlandi hafa byrjað að eitra fyrir 100 þúsund flækingshundum í herferð gegn hundaæði í helstu borg héraðsins. Dýraverndunarsinnard hafa heitið því að taka málið fyrir dóm og stöðva þannig slátrunina í Srinagarborg. Þeir segja að drápin séu ólögleg, öfgakennd og grimmileg lausn á vandamáli sem hægt væri að leysa á annan hátt. Indland hefur hæstu tíðni dauðsfalla af völdum hundaæðis í heiminum. Yfirvöld hafa beitt ýmsum aðferðum til að ná tökum á þeim milljónum flækingshunda sem lifa á götum borga. „Hundarnir eru til mikils ama og ógna heilbrigði mannfólksins," sagði Riyaz Ahmad læknir í Srinagar. „Við höfum pantað eitrið og munum dreifa því á stóru svæði. Nú notumst við við það eitur sem við höfum." Ekki hefur fengist uppgefið hversu marga hunda er þegar búið að drepa en Ahmad sagði við AP fréttastofuna að takmarkið væri 100 þúsund. Meira en 60 prósent dauðsfalla af völdum hundaæðis í heiminum sem telja um 35 þúsund í allt, verða á Indlandi samkvæmt tölum Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar. Flækiingshundum er oftast kennt um. Á sumum svæðum mynda villihundar hópa og hafa ráðist á fólk. Þrátt fyrir það er litið á hundana sem gæludýr samfélagsins, þeir séu hálftamdir og fái gjarnan mat frá íbúum. Í Bangalore var hætt við svipaða herferð eftir að 200 hundar lágu í valnum. Þá komu fram ásakanir um að óþjálfaðir starfsmenn hefðu grýtt hundana eða barið til dauða eða kyrkt þá. Í Nýju Delhi stakk bæjarfulltrúi upp á því að hundarnir yrðu fluttir til Kóreu þar sem hundakjöt er talið hið mesta lostæti. Herferðinni í Srinagar var ekki hrundið af stað vegna dauðsfalla heldur vegna þrýstings frá almenningi eftir umræðu í fjölmiðlum.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira