Engin tengsl á milli Hálslóns og jarðskjálfta við Upptyppinga 5. mars 2008 14:38 Hálslón. MYND/Rósa
Tveir vísindamenn sem rannsakað hafa fylgni vatnssöfnunar í Hálslón og skjálftavirkni við Upptyppinga segja ekkert benda til þess að skjálftana megi rekja til fyllingar lónsins. Þetta kemur fram á heimasíðu Kárahnjúkavirkjunar en undanfarið hefur gætt mikillar skjálftavirkni við Upptyppinga sem sumir hafa viljað tengja við fyllingu Hálslóns. „Landsvirkjun fékk dr. Birgi Örn Arnarson, verkfræðing, og dr. Hrafnkel Kárason, verkfræðing og jarðeðlisfræðing, til að greina hvort tölfræðileg fylgni væri milli fyllingar Hálslóns og jarðskjálfta við Upptyppinga árið 2007," segir í frétt á heimasíðu virkjunarinnar. „Þeir könnuðu og pöruðu saman tímabil upp á 1, 7 og 14 daga og litu annars vegar til uppsafnaðrar fyllingar lónsins og hins vegar uppsafnaðrar orku jarðskjálfta á sama tímabili." Niðurstaðan var á þá leið að ekki væru tölfræðilegar forsendur fyrir ályktun um að fylling Hálslóns hafi haft áhrif á jarðskjálfta við Upptyppinga. „Það er jákvæð tölfræðileg fylgni í gögnunum með tímaseinkun upp á 2 til 6 vikur, þ.e. milli fyllingar í 1, 7 eða 14 daga og jarðskjálfta tveimur til sex vikum seinna," segir í fréttinni og því bætt við að í raun megi snúa dæminu við: „Ef röð viðburða er snúið við sýna tölfræðileg próf hins vegar meiri fylgni. Það fæst sem sé hærri fylgnistuðull þegar könnuð eru áhrif jarðskjálfta við Upptyppinga á fyllingu Hálslóns en þegar könnuð eru áhrif fyllingar Hálslóns á jarðskjálfta við Upptyppinga!" Fréttina á heimasíðu virkjunarinnar má sjá hér.
Mest lesið Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Innlent Mangione sagður ætla að játa Erlent „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Innlent Fleiri fréttir Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Ökumenn beðnir um að sýna aðgát vegna fýlsunga Frá hrifningu til vonbrigða: Svona upplifðu borgarbúar almyrkvann Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og Grafarvogi Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Forskot Já-hliðarinnar mælist minna ESB-málin í brennidepli og uppgjör eftir almyrkvann Einn handtekinn vegna gruns um líkamsárás og hótanir „Ég get ekki orða bundist“ Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Bein útsending: Málstofa og sýning um íslensk námsgögn Umferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vanalega Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Allir í skýjunum með almyrkvann: Himnanir opnuðust á hárréttum tíma Greiddu atkvæði gegn ráðningu nýs bæjarstjóra Fjallabyggðar Gott að vera temmilega tortrygginn Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þorgerður afþakkaði Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Sjá meira