Sérstakar greiðslur til foreldra sem bíða eftir leikskólaplássi 4. mars 2008 13:55 Ólafur Friðrik Magnússon borgarstjóri.
1,6 milljarða króna viðbótarframlagi verður veitt til heimaþjónustu, húsaleigubóta, sérskóla og sérdeilda samkvæmt breytingartillögum sem meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur gerir við þriggja ára áætlun borgarinnar. Breytingatillögurnar voru kynntar á blaðamannafundi í Ráðhúsinu í dag. Ólafur Friðrik Magnússon borgarstjóri segir að um sé að ræða viðbót til skóla- og velferðarmála sem rík áhersla sé lögð á í málefnasamningi meirihlutans. Auk þessa mun Reykjavíkurborg taka upp sérstakar greiðslur til þeirra foreldra sem bíða eftir niðurgreiddum leikskólaplássum fyrir börn sín. Borgarstjóri segir að með þessu sé sagt skilið við biðlistastefnuna í leikskólamálum. Þá er stefnt að því að bjóða upp á fjölbreyttara skólastarf með meira vali fyrir grunnskólanemendur. Gert er ráð fyrir að frístundaheimili verði opin í sumar til reynslu. Þá er stefnt að því að frístundakort verði hækkuð úr 25 þúsund krónum í 40 þúsund krónur í ársbyrjun 2009. Meirihlutinn í borgarstjórn stefnir jafnframt að því að auka heimaþjónustu við eldri borgara og öryrkja verulega og jafnframt að auka stuðningsþjónustu á þjónustumiðstöðvum. Þá verður húsaleigubótakerfið eflt í samvinnu við ríkið og þjónustuíbúðir verða reistar við Sléttuveg og í Spöng. Þá segja borgarfulltrúar meirihlutans að á fyrstu 40 starfsdögum sínum hafi nýi meirihlutinn í borgarstjórn komið ótrúlega miklu í verk. Fimmtán af 17 áhersluatriðum málefnasamningsins hafi þegar verið efnd eða séu komin í ákveðið ferli.
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Innlent Fleiri fréttir Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Sjá meira