Íbúum fjölgar mest á Suðurnesjum milli ára 4. mars 2008 09:15
Íbúum fjölgaði mest á Suðurnesjum af öllum landshlutum í fyrra, eða um rúm átta prósent, samkvæmt samantekt Hagstofunnar. Hins vegar fækkaði íbúum Vestfjarða um rúm tvö prósent á milli áranna 2006 og 2007 og á Austurlandi fækkaði fólki um rúm níu prósent. Hins vegar fjölgaði íbúum höfuðborgarsvæðisins um 2,4 prósent. Tölur Hagstofunnar leiða enn fremur í ljós að að á tímabilinu 2002-2007 fjölgaði íbúum á Suðurnesjum um 4,3 prósent en um 3,7 prósent á Austurlandi. Íbúum Vestfjarða fækkaði hins vegar að meðaltali um 1,6 prósent undanfarin fimm ár. Mikil fólksfjölgun síðustu þrjú ár Bent er á á vef Hagstofunnar að undanfarin þrjú ár hafi fólksfjölgun verið mikil hér á landi. Í byrjun árs voru Íslendingar nærri 313.400 og hafði fjölgað um nærri sex þúsund á milli ára, eða um 1,9 prósent. Hlutfallsleg fólksfjölgun árið 2007 var þó minni en árin tvö þar á undan en árið 2006 var fólksfjölgun hérlendis 2,6 prósent sem er með því mesta sem mælst hefur. Ef undanskilin eru árin 2005 og 2006 hefur fólksfjölgun á Íslandi ekki verið meiri síðan árið 1961. Á sjötta áratugnum var fólksfjölgunarhlutfallið hérlendis nokkuð hátt, eða 1,6 prósent að meðaltali. Á sjöunda áratugnum lækkaði hlutfallið niður í 1,1 prósent að meðaltali og hélst nokkuð jafnt út öldina og fram til 2004. Árið 2005 jókst fólksfjölgun mjög milli ára og var þá 2,2 prósent. Til samanburðar má nefna að í flestum Evrópuríkjum nær fólksfjölgun ekki einu prósenti á ári. Á tíunda áratug síðustu aldar var fólksfjölgun í Evrópu um 0,2 prósent að jafnaði. Fólksfjölgun meira rakin til fólksflutninga en áður Fólksfjölgunina má rekja meira en áður til fólksflutninga til landsins en til náttúrulegrar fjölgunar. Aðfluttir umfram brottflutta hingað til lands námu einu prósenti í fyrra en var 1,8 prósent árið 2006 og 1,3 prósent árið 2005. Fram að því hafði flutningsjöfnuður jafnan verið undir eitt prósent. Náttúruleg fjölgun árið 2007 var 0,8 prósent sem er sama hlutfall og verið hefur undanfarin ár.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi Sjá meira