Þjónustufulltrúi útbjó 781 tilhæfulausan reikning 3. mars 2008 14:05 Konan starfaði sem þjónustufulltrúi hjá Tryggingastofnun.
Höfuðpaur fjársvikamálsins í Tryggingastofnun, sem greint var frá í morgun, er 45 ára gömul kona úr Reykjavík. Hún er ákærð fyrir fjársvik í opinberu starfi, sem framin voru á tímabilinu 2. janúar 2002 til 9. júni 2006, á meðan konan starfaði sem þjónustufulltrúi hjá stofnuninni. Samkvæmt ákæru Ríkislögreglustjóra framdi konan brotin með því að útbúa 781 tilhæfulausa kvittun fyrir útborgunum og blekkja gjaldkera Tryggingastofnunar til að greiða að tilefnislausu úr sjóðum stofnunarinnar á grundvelli þessara reikninga hátt í 76 milljónir króna. Ákæran gegn konunni er í 22 liðum. Nítján aðrir einstaklingar, karlar og konur á aldrinum 20 til 54 ára, eru ákærðir fyrir hylmingu en til vara peningaþvætti, með því að veita viðtöku á bankareikninga í þeirra vörslu, halda og ráðstafa fé sem var ávinningur af brotum þjónustufulltrúans þrátt fyrir að vera ljóst að um illa fengið fé var að ræða. Fjórir einstaklingar eru svo ákærðir fyrir hlutdeild í fjársvikum þjónustufulltrúans með því að fá samþykki frá 15 meðákærðu fyrir því að greiðslur sem sviknar voru út úr Tryggingastofnun ríkisins yrðu lagðar inn á bankareikning þeirra. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 14. mars næstkomandi.
Mest lesið Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Innlent Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Innlent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ Innlent Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Innlent Fleiri fréttir Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Alls 246 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Óskar viðbragða ráðherra við löngum afgreiðslutíma Lögregla lýsir eftir heilabilaðri konu á Akureyri „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Vilja taka fjármálaáætlun til umræðu Einu verslun Þingeyringa lokað Aðsóknarmet slegið í lögreglunám Sjá meira