Innlent

Búnaðarþing hefst í dag

Búnaðarþing verður sett við hátíðlegri athöfn á Hótel Sögu klukkan hálftvö í dag. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, flytur ávarp en yfirskrift setningarathafnarinnar verður „Að lifa af landsins gæðum".

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, flytur hátíðarræðu og Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ávarpar samkomuna auk þess að veita árleg landbúnaðarverðlaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×