Innlent

Hringvegurinn lokaður við Reynisfjall

Mikil snjókoma hefur verið í Vík í Mýrdal og skyggni er þungt eins og myndin sem tekin var í morgun ber með sér.
Mikil snjókoma hefur verið í Vík í Mýrdal og skyggni er þungt eins og myndin sem tekin var í morgun ber með sér. MYND/Sigurður Hjálmarsson

Hringvegurinn er lokaður við Reynisfjall vestan við Vík í Mýrdal vegna ófærðar. Mikil ofankoma og hvassviðri hefur verið á Vík undanfarna daga. Leiðindaveður er í Vík og töluvert kóf eins og Gísli Reynisson, íbúi í bænum lýsti því í samtali við fréttastofu í morgun. Hann sagði töluvert af snjó í bænum enda hefði snjóað mikið síðustu daga og fokið í skafla.

Hálka og þæfingsfærð er víða á Suðurlandi. Þannig er skafrenningur og hálka á Reykjanesbraut, Hellisheiði, Sandskeiði sem og í Þrengslum og þæfingsfærð er á milli Þjórsár og Hvolsvallar.

Á Vesturlandi eru einnig hálkublettir og hálka og éljagangur er í nágrenni við Borganes og Þæfingsfær á Útnesvegi. Vegna framkvæmda á Hringvegi 1 í Borgarnesi er umferð beint um hjáleið og biður Vegagerðin vegfarendur að sýna aðgát.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×