Vinna hefst við enduruppbyggingu á Laugavegi í lok ársins 29. febrúar 2008 12:00
Vinna við enduruppbyggingu húsanna við Laugaveg 4 og 6 hefst að öllum líkindum fyrir lok þessa árs að sögn borgarstjóra. Kostnaður liggur þó enn ekki fyrir né hvernig framkvæmdum verður háttað. Eitt af fyrstu verkum hins nýja meirihluta í borgarstjórn var að kaupa húsin við Laugaveg 4 og 6 fyrir 580 milljónir króna. Áður stóð til að rífa húsin og byggja þar hótel en nú á að endurbyggja þau í upprunalegri mynd. Síðan kaupin fóru fram í janúar hefur lítið þokast í málinu og hafa húsin staðið auð. Ólafur F. Magnússon borgarstjóri segir að reynt verði að hraða vinnslu málsins. Aðspurður hvenær hann eigi von á því að framkvæmdir geti hafist segir Ólafur að hann geri sér góðar vonir um að þær geti hafist á þessu ári. Það verði reynt að vinna hratt í þessu máli. „Að sjálfsögðu erum við ekki tilbúin með teikningar eða framkvæmdir á þessu stigi. Það er verið að reyna vinna hratt og markvisst í þessu máli. Það er líka verið að vinna að endurskoðun deiliskipulags Laugavegarins út frá því skipulagi sem þegar liggur fyrir. Það er ekki verið að kasta neinu á glæ," segir Ólafur. Samkvæmt áætlun sem fyrri meirihluti lét gera kostar um 390 milljónir að endurbyggja húsin. Ólafur segir alls ekki liggja fyrir hver endanlegur kostnaður kann að verða. Það sé ljóst að borgin fái verulega fjármuni til baka af því sem verið hefur lagt út í þessu sambandi. Þarna hafi verið að bjarga menningarverðmætum og skipulagsmálum á síðustu stundu.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Sjá meira