Vilhjálmur hafði borgarstjórastólinn af Árna Sigfússyni 28. febrúar 2008 16:49 Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
Árni Sigfússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson höfðu komist að samkomulagi þess efnis að Árni tæki við af Davíð Oddssyni þegar hann lét af embætti borgarstjóra árið 1991. Þegar á hólminn var komið hætti Vilhjálmur hins vegar við og því var Markús Örn Antonsson fenginn í starfið. Í fréttaskýringu í Morgunblaðinu á þriðjudaginn var er saga þessi rakin og í samtali við Vísi staðfestir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, að rétt sé farið með í meginatriðum. „Í meginatriðum þá var þetta svona," segir Árni en hann vill ekki ræða málið frekar. Í Morgunblaðinu er greint frá því að þegar Davíð hætti hafi þeir Árni og Vilhjálmur haft nákvæmlega jafn mikinn stuðning innan borgarstjórnarinnar, níu fulltrúa hvor. Katrín Fjeldsted gerði sjálf tilkall til oddvitastöðunnar og Davíð ákvað að sitja hjá. Árni og Vilhjálmur komust síðan að samkomulagi um að Árni yrði borgarstjóri en að Vilhjálmur yrði formaður borgarráðs, en áður hafði tíðkast að borgarstjóri gegndi einnig því embætti. Þessi tilhögun mun hafa verið handsöluð seint um kvöld og ákváðu þeir Árni og Vilhjálmur að mæla sér mót við Davíð klukkan 10 morguninn eftir að því er greint er frá í fréttaskýringu Morgunblaðsins. Árni átti að hringja í Vilhjálm áður þannig að þeir gætu orðið samferða á fund Davíðs. En morguninn eftir náði Árni ekki í Vilhjálm og ákvað því að fara einn á fund Davíðs í stjórnarráðinu. Þegar Árni kom þangað sagði Davíð honum að Vilhjálmur hefði komið til sín fyrr um morguninn og tilkynnt sér að ekkert samkomulag hefði náðst. Þetta varð til þess að Davíð ákvað að fá Markús Örn Antonsson í starfið. Vísir náði tali af Árna Sigfússyni sem staddur er í fríi erlendis og bar söguna undir hann. „Þetta er svona í áttina að því sem þar gerðist en ég vil ekki fjalla frekar um það. Í meginatriðum var þetta svona," segir Árni og bætir við: „Þetta er bara liðið og ég ætla ekkert að fara að dvelja við það eða rifja upp í sögulegu samhengi."
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Sjá meira