Lögreglumennirnir fengu áfallahjálp eftir árás Litháanna 28. febrúar 2008 13:24 Árásin átti sér stað fyrir utan barinn Monte Carlo á Laugavegi.
Aðalmeðferð í máli þriggja Litháa sem sakaðir eru um árás gegn fjórum rannsóknarlögreglumönnum fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þrír Litháar eru ákærðir en þeir neita allir sök í málinu. Segjast ekki hafa gert sér grein strax að um lögreglumenn hafi verið að ræða. Lögreglumennirnir fengu áfallahjálp eftir árásina. Fjórir rannsóknarlögreglumenn voru við fíkniefnaeftirlit á Laugaveginum fyrir utan barinn Monte Carlo aðfararnótt 11.janúar síðast liðin þegar árásin varð. Lögreglumennirnir höfðu afskipti af tveimur karlmönnum og konu sem er góðkunningi lögreglunnar þegar ung stúlka kemur að þeim með bros á vör. Hún spyr hvort þeir séu að ráðast á stúlkuna og í sömu andrá fær einn lögreglumannanna þungt högg á vinstra gagnauga. Lögreglumennirnir öskra þá að þeir séu lögreglumenn og sýna skilríki sem héngu um háls þeirra. Fljótlega koma aðrir þrír Litháar út út úr BMW bifreið og ráðast að mönnunum. Sá sem veitti lögreglumanninum höggið slær annan lögreglumann í vinstra kinnbein. Þrír þessara Litháa ráðast því næst á þriðja lögreglumanninn og kýla hann ítrekað svo hann fellur í jörðina. Þar sparka þeir í manninn en sá sem hafði sig mest í frammi hleypur í burtu. Lögreglumennirnir kalla þá eftir aðstoð og elta manninn upp Laugaveginn. Hann er síðan handtekinn í porti ofar á Laugaveginum. Í átökunum grípa lögreglumennirnir til táragass og nota kylfur til þess að hafa hemil á mönnum. Þrír mannanna eru handteknir á staðnum en tveir daginn eftir. Litháinn sem fyrstur kom á vettvang sagði fyrir dómi að hann hefði ekki slegið neinn og neituðu allir mennirnir sök í málinu. Hann sagðist vera að vernda vinkonu sína sem rauk út úr bílnum og hefði ýtt við lögreglumönnunum þess vegna. Stúlkan sagði hinsvegar í lögregluskýrslu að maðurinn hefði slegið lögreglumanninn. „....áberandi fast svo það minnti á rothögg í boxi." Eftir að maðurinn var handtekinn var farið með hann á lögreglustöð. Þar segir hann að m.a. hafi köldu vatni verið helt yfir hausinn á sér. Hann sagðist hafa verið veikur og því hefði hann einungis drukkið einn bjór um kvöldið. Hinsvegar mældist 0,67 prómill í blóði hans einum og hálfum tíma eftir handtökuna. Í máli eins Litháanna kom fram að þeir hefðu bæði misst vinnu og húsnæði í kjölfar árásarinnar. Hann hafi komið hingað til lands í maí 2006 og ætlað að setjast hér að þar sem honum hafi líkað vel við landið. Lögreglumennirnir voru í miklu áfalli eftir árásina og töluðu um mikinn ótta innan fjölskyldunnar. Þeir hittu meðal annars geðhjúkrunarfræðing sem þeir segja hafa hjálpað sér mikið. Sjá einnig: Héraðsdómur féllst á kröfu um gæsluvarðhald Litháar í farbanni til 1.febrúar Staðfest farbann vegna árása á lögreglumenn Litháarnir bera af sér sakir í Héraðsdómi Þrír ákærðir fyrir að ráðast á fíkniefnalögreglumenn
Mest lesið Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Erlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Innlent Björgvin Halldórsson látinn Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Fleiri fréttir Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Sjá meira