79 Kúrdar hafa fallið í átökum við Tyrki 23. febrúar 2008 16:40
Tyrknesk yfirvöld sögðu í dag að 79 kúrdískir uppreisnarmenn hefðu fallið í átökum við tyrkneska herinn í norðurhluta Írak síðan hersveitir fóru inn í landið á fimmtudagskvöld. Sjö tyrkneskir hermenn hafa fallið í sömu átökum að sögn yfirvalda. Tyrkir segjast vera að uppræta hryðjuverkahópa Kúrda á svæðinu en talið er að um 2000 skæruliðar PKK samtakanna haldi til í fjalllendi við landamæri Norður-Írak og Tyrklands. Sókn Tyrkja inn á íraskt landsvæði hefur valdið miklum titringi og hafa bæði írösk og bandarísk yfirvöld varað Tyrki við afleiðingum þess ef átökin fari úr böndunum. Er þetta fyrsta staðfesta hernaðaraðgerð Tyrkja í landinu frá því Bandaríkin leiddu innrásina í Írak árið 2003. Uppreisnarsveitir PKK hafa barist fyrir sjálfstæði Kúrda í suðausturhluta Tyrklands síðan 1984. Talsmaður PKK hefur sagt uppreisnarmennina reiðubúna undir átök við tyrkneska herinn. „Sveitir PKK eru að vernda írakskt landsvæði Kúrdistans og munu varna því að tyrkneski herinn nái langt inn í Írak." Fulltrúar Bandaríkjahers sögðust telja að hernaðaraðgerðin myndi vera „takmörkuð að tímalengd" og að henni væri sérstaklega beint gegn kúrdískum uppreisnarmönnum sem standa fyrir tíðum árásum á tyrknesk landsvæði frá búðum sínum handan landamæranna. Forseti Íraks, Jalal Talabani, hringdi í utanríkisráðherra Tyrklands, Abdullah Gul, í gær og sagði að „Tyrkland ætti að virða einingu Íraks og fullveldi og ekki ráðast inn í landið".
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Sjá meira