Fara fram á þunga dóma yfir brennuvörgum í Danmörku 20. febrúar 2008 23:31 MYND/AFP
Lögregluyfirvöld í Danmörku hyggjast fara fram á það að þau ungmenni sem staðið hafa fyrir íkveikjum í landinu undanfarin kvöld fái þunga refsingu, jafnvel margra ára fangelsi. Í Kaupmannahöfn einni hefur verið kveikt í á um 200 stöðum á átta dögum. Með íkveikjunum hafa ungmennin verið að mótmæla því að dönsk blöð endurbirtu skopmyndir af Múhameð spámanni eftir að upp komst að til stóð að ráða einn teiknara þeirra af dögum. Lögreglan bendir á að íkveikjur sé ekki eins og hvert annað rúðu- eða speglabrot. ,, Þau skilja ekki afleiðingar íkveikjanna en við munum fara fram á þungar refsingar," er haft eftir yfirmanni hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn í Jótlandspóstinum. Í dönskum lögum er ákvæði um vægar refsingar fyrir íkveikju sem hljóðar upp á allt að sex ára fangelsi. Hins vegar er einnig ákvæði um þyngri refsingar, allt að lífstíðarfangelsi, til að mynda fyrir að kveikja eld í nágrenni íbúða eða í skólum og stofnunum. Fram hefur komið að kveikt hefur verið í nokkrum skólum og segir lögregla að í nokkrum tilvikum verði sóst eftir því að ungmenni verði dæmd á grundvelli ákvæðisins um þyngri refsingar. Rannsókn brunanna er mislangt á veg komin en mun að líkindum taka nokkra mánuði. Alls hafa 43 setið í gæsluvarðhaldi vegna óeirðanna í Danmörku. Flestir þeirra eru piltar á aldrinum 16-18 ára, af erlendum uppruna og koma úr fjölskyldum sem eiga erfitt uppdráttar.
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Sjá meira