Berjast um ofurkjörmenn Demókrata 18. febrúar 2008 10:18 MYND/AFP
Barack Obama og Hillary Clinton takast nú á um stuðning svokallaðra ofurkjörmanna innan Demókrataflokksins. Kosningakerfi flokksins er afar flókið og stuðningur þeirra gæti skipt sköpum. Ofurkjörmenn eru ekki valdir á flokksþingum í hverju ríki, heldur teljast þeir ofurkjörmenn eingöngu vegna stöðu sinnar sem fyrrum, eða núverandi embættismenn á vegum flokksins. Þeim er frjálst að styðja þann frambjóðanda sem þeir vilja. Obama hefur stuðning fleiri kjörmanna en Clinton fleiri ofurkjörmanna. Það er því afar mjótt á mununum og talið ólíklegt að annað þeirra nái stuðningi nægilega margra kjörmanna til að úrslitin ráðist fyrir flokksþingið í ágúst. Það sem flækir hlutina enn frekar er að stuðningur kjörmanna endurspeglar ekki atkvæði í kosningum. Í forkosningunum í Nevada sem dæmi vann Clinton með sex stigum, en Obama fékk einum fleiri kjörmenn vegna þeirrar aðferðar sem ríkið notar við að tilnefna kjörmenn. Obama er spáð sigri í Wisconsin, Washingtonríki og Hawaii í þessari viku. Clinton horfir hins vegar til kosninga í Texas og Ohio 4. mars í von um sigur þar. Það gæti hjálpað henni að vinna upp forskot að nýju. Hún vonast einnig eftir sigri í Pensilvaníu í apríl. Howard Wolfson upplýsingafulltrúi Clinton sagði á CNN að erfitt væri fyrir demókrata að kjósa þar sem frambjóðendurnir tveir væru sterkir með breiða stefnuskrá. Nú eru menn einnig farnir að spá um hvernig frambjóðendunum myndi ganga hreppi þeir tilnefningu síns flokks. Kjósendur í Ohio eru samkvæmt könnuninni líklegri til þess að kjósa McCain umfram Obama og Hillary. Í Pennsylvaníu snýst dæmið hins vegar við og í því ríki myndu bæði Obama og Hillary hafa betur gegn McCain. Clinton er nú komin með 1.220 kjörmenn samkvæmt heimildum BBC en Obama er kominn fram úr henni með 1.275 kjörmenn. John McCain hefur hins vegar tryggt sér 843 kjörmenn en Mike Huckabee 280.
Mest lesið Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Innlent Segist vilja komast til himna Erlent Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Innlent Mínútuþögn á Menningarnótt Innlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf Innlent Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Innlent „Það er engin sleggja“ Innlent Ísland frumstætt samanborið við Noreg Innlent Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Innlent Fleiri fréttir Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Hamasliðar ganga að tillögum um 60 daga vopnahlé Góður fundur en fátt fast í hendi Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Sjá meira