Lagði út um hálfa milljón vegna morðsins á Bhutto 17. febrúar 2008 23:08 Benzir Bhutto. MYND/AFP
Talibani af pakistönskum uppruna greiddi rúmlega sjö þúsund dollara, jafnvirði nærri hálfrar milljónar króna, fyrir morðtilræðið við Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans. Þetta segir yfirmaður hjá pakistönsku lögreglunni sem rannsakar morðið á Bhutto. Fjórir menn eru í haldi vegna málsins og segja þeir allir að pakistanski talibaninn Baitullah Mehsud hafi skipulagt morðið, en Bhutto var ráðin af dögum í borginni Rawalpindi þann 27. desember síðastliðinn. Meðal þess sem Mehsud lagði út fyrir voru sjálfsmorðssprengjuvesti sem notuð voru í tilræðinu. Mehsud er sagður hafa tengsl við al-Qaida en hann gengur enn laus.Tveir mannanna sem eru í haldi hafa þegar viðurkennt aðild að tilræðinu og segir yfirmaður rannsóknarinnar að enn eigi eftir að handtaka fjölda manns sem sé viðriðinn árásina. Pakistönsk yfirvöld greindu frá því daginn eftir tilræðið að Mehsud hefði staðið á bak við árásina og komst bandaríska leyniþjónustan CIA að sömu niðurstöðu. Nýjar skoðanakannanir í Pakistan sýna hins vegar að meirihluti Pakistana telji að forsetinn Pervez Musharraf og ríkisstjórn hans hafi átt þátt í morðinu. Bhutto hafði nýverið snúið heim úr útlegð og hugðist taka þátt í þingkosningum í landinu þegar hún var myrt.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Sjá meira