Erlent

80 þúsund hermenn gæta öryggis í Pakistan

Benazir Bhutto var myrt í desember.
Benazir Bhutto var myrt í desember. Mynd/ AFP

Áttatíu þúsund hermenn eru að störfum víðsvegar í Pakistan til að tryggja öryggi fyrir þingkosningar sem fara fram í landinu á morgun. Asif Ali Zardari, ekkill Benazir Bhutto og leiðtogi stærsta stjórnarandstöðuflokksins í landinu kallar eftir friði eftir að sjálfsmorðssprengja varð 37 manns að bana þar í gær.

Sprengjan sprakk í gær eftir kosningafund í Parachinar í norð-vestur Pakistan. Fjöldi fólks beið eftir mat þegar bíl var ekið upp að þeim og hann sprengdur í loft. M argir hinna slösuðu voru stuðningsmenn Pakistanska þjóðarflokksins, en Benazir Bhutto var formaður flokksins þegar hún var myrt á kosningafundi í desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×