Litháískir fangar ánægðir með launin á Litla Hrauni 16. febrúar 2008 11:51 Frá Litla - Hrauni „
Það er mín tilfinning að þeim finnst þeir ekki hafa neinu að tapa. Ef smyglið tekst koma þeir út í gróða en ef það mistekst fá þeir vinnu í fangelsi á launum sem þykja bærileg í Litháen," segir Einar Loftur Högnason, fangavörður á Litla Hrauni, í samtali við Fréttablaðið í dag. Einar Loftur og aðrir starfsmenn Fangelsismálastofnunar segja þó að Litháar séu einkar vel liðnir innan fangelsisveggjanna. Þeir séu harðduglegir, snyrtilegir og eigi auðvelt með að búa í návígi við aðra. Í Fréttablaðinu í dag er fréttaskýring eftir Karen D. Kjartansdóttur og Magnús Halldórsson blaðamenn. Þar kemur fram að dómsmálaráðuneytið vinni að því að kanna möguleika á því að senda erlenda ríkisborgara sem gerst hafi brotlegir við lög hér á landi til afplánunar í heimalandi sínu. Þar segir að útlendingum hafi fjölgað ört í íslenskum fangelsum undanfarin áratug. Þeir séu nú um sextán prósent af heildarfjölda fanga. Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu segir þetta vera eina af birtingarmyndum alþjóðavæðingar. Fréttablaðið segir viðmælendur sína innan lögreglunnar og Fangelsismálastofnunar vera sammála um að það geti valdið vandræðum ef útlendingar nái að mynda tengsl við íslenska fanga. Þannig sé líklegra að skipulögð glæpastarfsemi nái að skjóta rótum hér á landi.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Sjá meira