Maðurinn sem hóf skothríð í Northern Illinois háskólanum í Bandaríkjunum í gærkvöld með þeim afleiðingum að fimm féllu hét Stephen Kazmierczak. Hann var 27 ára gamall og stundaði framhaldsnám í félagsfræði við skólann. Hann var vopnaður þremur skammbyssum og haglabyssu.
Don Grady lögreglumaður í Illinois segir að ekki sé vitað hvers vegna Kazmierczak hóf skotárásina í fyrirlestrasal í skólanum þar sem vel á annað hundrað manns hlýddu á fyrirlestur. Auk þeirra sem dóu særðust 15 manns áður en Kazmierczak skaut sjálfan sig til bana.

Robert Kazmierczak, faðir byssumannsins, var harmi sleginn þegar fjölmiðlar heimsóttu hann að heimili hans í Lakeland í Flórída í dag. Hann sagði að þetta væri erfiður tími en gat að öðru leyti ekki tjáð sig.
Fjölmargir hafa vottað aðstandendum hinna látnu virðingu sína og samúð. Þeirra á meðal er George Bush Bandarikjaforseti.