Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. október 2026 07:17 Trump forseti birti töluvert af færslum á Truth Social í gær þar sem hann meðal annars ógnaði fullveldi Grænlands. Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa stofnað nýja verkefnastjórn sem á að sjá um málefni gervigreindar í Bandaríkjunum. Þetta gerir hann nokkrum dögum eftir að hann undirritaði tilskipun þess efnis að gervigreind myndi frekar bera heitið ofurgreind. Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækja hafa kallað eftir því að hægt verði á þróun gervigreindarinnar af öryggisástæðum.
Trump greinir frá þessum vendingum í færslu á Truth Social, samfélagsmiðli sem er í hans eigu. Verkefnastjórnin mun bera heitið Ofurgreindarsveitin og mun Jay Clayton, yfirmaður leyniþjónustumála, leiða stjórnina. Færsla Trumps á Truth Social. Markmið hennar verður að tryggja að Bandaríkin haldi áfram að vera í forystu í þróun gervigreindartækni og mun stjórnin einnig samræma samskipti stjórnvalda við almenning. Andrew Ferguson, formaður Alríkisviðskiptanefndarinnar, Emil Michael aðstoðarvarnarmálaráðherra og Scott Kupor, forstjóri Starfsmannaskrifstofunnar, munu einnig eiga sæti stjórninni. Siðferðislegur samningur Forstjórar stærstu gervigreindarfyrirtækja Bandaríkjanna, á við OpenAI og Anthropic, kölluðu eftir því að hægt yrði á þróun á gervigreind þar sem hún væri það hröð að ekki væri hægt að tryggja öryggi á sama tíma. Dario Amodei, forstjóri Anthropic, ritaði langa grein um málið eftir að starfsmaður fyrirtækisins sagði upp störfum og vísaði í áhyggjur sínar af öryggi tækninnar. Fleiri hafa nú sagt starfi sínu lausu vegna þessa, nú síðast David Robinson, öryggisstjóri OpenAI. Trump var ekki ánægður með þetta ákall en hélt fund með helstu forsvarsmönnum, til að mynda hjá OpenAI, Anthropic, SpaceX og Google, til að ræða málin. Hann hafnaði ákallinu um aukið eftirlit en á fundinum undirrituðu forsvarsmennirnir „siðferðislegt samkomulag“ sem sagði að fyrirtækin sjálf bæru ábyrgð á því að tryggja öryggi tækninnar. Þeir eigi einnig að fá óháða úttekt á því hvort gervigreindartækni þeirra virki sem skyldi og tryggja að tæknin framkvæmi ekki tölvuárásir en slíkt hefur gerst nokkrum sinnum undanfarna mánuði. Gervigreind OpenAI sem nefnist ChatGPT hakkaði sig til að mynda inn á vefsíðu ástralskra stjórnvalda í sumar. OpenAI hætti einnig við að gefa út nýjasta gervigreindarlíkanið sitt vegna öryggisáhrifa. Tilskipaði ofurgreind Sama dag og siðferðislega samkomulagið var undirritað skrifaði Trump sjálfur undir tilskipun sem fyrirskipar opinbera geiranum í Bandaríkjunum að nota hugtökin SI og ofurgreind (Super Intelligence). Trump hafði þegar ýjað að þessari breytingu í ræðu sinni á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Þar sagðist hann hafna öllum tillögum glóbalista um að ná böndum á gervigreindinni sem ætti að vera kölluð ofurgreind. „Sá sem sigrar í gervigreind, SIGRAR! Við erum með forystu yfir Kína og öllum öðrum og ég mun sjá til þess að svo verði áfram,“ sagði Trump. Samkvæmt BBC hafa sérfræðingar gagnrýnt þessa breytingu þar sem hugtakið ofurgreind gæti valdið ruglingi þar sem hún vísar til fullkomnari kerfa. Þrátt fyrir það hafa nokkrir leiðtogar í tæknigeiranum þegar byrjað að nota hugtakið, þar á meðal Elon Musk, sem sagðist ætla að endurnefna gervigreindarvettvang fyrirtækisins síns sem heitir nú SpaceXAI, í SpaceXSI. „SpaceX er ofurgreindarfyrirtæki,“ skrifaði Musk í færslu á X. SpaceX is a super intelligence company— Elon Musk (@elonmusk) October 4, 2026 Trump og Musk voru miklir vinir við upphaf seinna kjörtímabils Trumps. Musk starfaði við hlið Trumps og sá um niðurskurð ríkisins en síðan flosnaði upp úr vinasambandinu. Musk hraunaði meðal annars yfir fjárlagafrumvarp Trumps og sagði það „viðurstyggilegan hrylling“. Breytingin á heiti gervigreindar er enn eitt dæmið um tilhneigingu Trumps um að breyta nöfnum. Hann berst enn hart fyrir því að fá að bæta nafni sínu við heiti Kennedy-miðstöðvarinnar og hefur breytt bæði heiti Ontaríó-vatns og Mexíkóflóa í Ameríku-vatn og Ameríku-flóa.
Gervigreind Donald Trump Bandaríkin Elon Musk Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira