Rafiðnaðarsambandið greiddi 600 þúsund króna skaðabætur fyrir Guðmund 15. febrúar 2008 13:03 Guðmundur Gunnarsson
Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambandsins var dæmdur til þess að greiða 250 þúsund krónur í skaðabætur vegna tiltekinna ummæla í Hæstarétti fyrir skömmu. Einnig þurfti hann að greiða lögfræðikostnað. Upphæðin sem er rúmlega 600 þúsund krónur var greidd af Rafiðnaðarsambandi Íslands. „Þetta mál var tekið fyrir í miðstjórn Rafiðnaðarsambandsins á sínum tíma og þar var komist að þeirri niðurstöðu að ég væri að sinna mínu starfi og svara spurningum um fundargerð," segir Guðmundur en á þeim forsendum var ákveðið að sambandið myndi greiða skaðabæturnar. Um er að ræða ummæli sem Guðmundur hafði uppi um starfsmannaleiguna 2b ehf og töldu eigendur hennar ummælin ærumeiðandi. Annar eigandinn, Olena Shcavynska krafðist þess að ummæli Guðmundar um sig yrðu dæmd ómerk. Í héraðsdómi var Guðmundur dæmdur til þess að greiða eina milljón í skaðabætur. Hæstiréttur sýknaði hinsvegar Guðmund af hluta ummælanna en taldi að Guðmundur hefði með ummælum um Olenu sakað hana um ámælisverða háttsemi, sem sönnur hefðu ekki verið færðar fyrir og var með þeim vegið að æru hennar. Voru þessi ummæli dæmd ómerk og hann dæmdur til þess að greiða fyrrnefndar skaðabætur. „Ég sagði þetta ekki heldur var bara að vitna í fundargerð. Það voru verkstjórar fyrir austan sem viðhöfðu þessi ummæli og höfðu eftir konunni. Þeir staðfestu það fyrir dómi," segir Guðmundur.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Sjá meira