Lífið

Tólf vinsælustu þættirnir á RÚV

Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV, er himinlifandi með nýja áhorfskönnun.
Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV, er himinlifandi með nýja áhorfskönnun.

"Það væri bölvuð frekja að fara fram á meira," segir Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV, við Vísi um nýja könnun Capacent um áhorf á sjónvarpsstöðvar sem birt var í dag.

Framkvæmd könnunarinnar er með breyttu sniði frá því sem áður var. Í stað dagbókarkönnunnar þar sem fólk fyllti út bækur er stuðst við svokallaðan PPM-mæli sem fólk ber á sér þegar það horfir á sjónvarpið.

RÚV kemur afar vel út úr könnunninni sem var framkvæmd vikuna 4. til 10. febrúar. Sjónvarpið á tólf vinsælustu dagskrárliðina þessa vikuna og segist Þórhallur vera hæstánægður með niðurstöðuna. "Við erum með þrjá þætti sem hafa yfir 50% áhorf og það sýnir að okkur er vel tekið," segir Þórhallur.

Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, sagði í samtali við Vísi að stöðin mætti mjög vel við una með niðurstöðuna en vinsælasti dagskrárliður Stöðvar 2 þessa vikuna var American Idol með uppsafnað áhorf upp á 27,2%.

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjás Eins, sagðist í samtali við Vísi vera virkilega ánægð með útkomuna. "Við erum frábrugðin hinum stöðvunum að því leyti að okkar markmið eru skýr. Við keppum ekki í heildaráhorfi heldur skiptir mestu máli fyrir okkur að markhópur okkar, sem er 12 - 49 ára, horfi á Skjá Einn á kjörtíma milli 20 og 23. Það markmið er að nást í þessum könnunum," segir Sigríður Margrét og bendir á að 11 þættir stöðvarinnar séu með yfir 20% áhorf í markhópnum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.