Erlent

Ólga í Beirút

Rafik Hariri var myrtur í sprengjutilræði í febrúar 2005.
Rafik Hariri var myrtur í sprengjutilræði í febrúar 2005.

Mikill öryggisviðbúnaður er nú í Beirút, höfuðborg Líbanon en þar fara fram í dag tvær athafnir sem óttast er að geti orsakað uppþot í borginni. Íbúar landsins minnast þess nú að þrjú ár eru liðin frá því að Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra, var ráðinn af dögum.

Þess verður minnst í dag en á sama tíma fer fram útför hryðjuverkaforingjans Imad Mughniyeh sem felldur var í gær í sprengingu. Óttast er að upp úr sjóði á milli andstæðinga stjórnvalda í Sýrlandi sem hafa mikil ítök í Beirút og stuðningsmanna þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×