Maó bauðst til að senda tíu milljónir kvenna til Bandaríkjanna 13. febrúar 2008 22:08
Mao Zedong, fyrrverandi leiðtogi Kína, bauðst til þess að senda tíu milljónir kínverskra kvenna til Bandaríkjanna árið 1973. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum skjölum sem bandaríska utanríkisráðuneytið hefur veitt aðgang að og vitnað er til á heimasíðu breska ríkisútvarpsins. Þar kemur fram að Maó hafi fundað með Henry Kissinger, þjóðarráðgjafa Bandaríkjanna, í febrúar árið 1973 í Peking þar sem meðal annars var rætt um samskipti þjóðanna og hættuna sem stafaði af Sovétríkjunum. Maó og Kissinger munu hafa gantast mikið á fundinum samkvæmt samtölum sem birt eru með skjölunum. Þannig bauðst Maó til þess að senda tugþúsundir kínverskra kvenna til Bandaríkjanna og hækkaði síðan tilboðið í tíu milljónir, en þetta mun hafa verið brandari hjá leiðtoganum. Engu að síður bætti hann við að kínverskar konur ælu of mörg börn og ef þær yrðu sendar til Bandaríkjanna myndu Kínverjar flæða yfir landið. Þá kvartaði Maó einnig yfir því að kínverskar konur kynnu ekki að berjast þegar rætt var um hættuna af Sovétríkjunum. Síðar baðst leiðtoginn fyrrverandi afsökunar á orðum sínum við kvenkyns túlk sem viðstaddur var fundinn. Hann og Kissinger komust að því að ummæli hans um kvenfólk yrðu afmáð úr skjölunum en svo virðist hins vegar sem Bandaríkjamenn hafi ekki gert það.
Mest lesið Tónleikar stöðvaðir vegna veikinda Arons Can Innlent Aron Can heill á húfi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Gylfi Ægisson er látinn Innlent Vínsalar látnir klára vakt eftir andlát í versluninni Innlent Hneig niður vegna flogakasts Innlent Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Erlent Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Innlent „Ef þú móðgaðist, þykir mér það leitt“ Innlent Fleiri fréttir „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ „Tími til kominn að ljúka stríðinu á Gasa“ Lýsa yfir herlögum í Taílandi Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Sjá meira