Erlent

Ætluðu að myrða danskan skopmyndateiknara

Danska lögreglan handtók í gær nokkra aðila sem grunaðir eru um að hafa lagt á ráðin um að myrða teiknara Jyllandsposten, en blaðið sjálft greinir frá þessu í dag. Blaðið segist hafa heimildir fyrir því að um danska ríkisborgara sé að ræða en einnig útlendinga.

Lögreglan hefur fylgst með hópnum í marga mánuði en hefur nú látið til skarar skríða. Teiknarinn, Kurt Westergaard er einn þeirra teiknara sem árið 2005 teiknuðu skopmyndir af spámanninum múhameð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×