Erlent

Boðað til kosninga í Búrma

Herforingjastjórnin í Búrma boðaði í dag til þingkosninga í landinu árið 2010. Kosningarnar verða þær fyrstu í Búrma í tvo áratugi.

Þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja stjórnarskrá verður haldin í maí næstkomandi en á grundvelli hennar verður kosið. Stjórnmálaskýrendur óttast að ákvæði stjórnarskrárinnar komi í veg fyrir að stjórnarandstæðingurinn Aung San Suu Kyi bjóði fram - en hún hefur verið í stofufangelsi í fjölda ára.

Allt verði gert til að tryggja áframhaldandi valdasetu herforingjastjórnarinnar. Fjölmenn mótmæli gegn herforingjastjórninni í september í fyrra voru barin niður af hörku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×