Lífið

Woody óttast um Scarlett

Scarlett Johanson og Woody Allen koma til sýningar Match Point á Cannes kvikmyndahátíðinni.
Scarlett Johanson og Woody Allen koma til sýningar Match Point á Cannes kvikmyndahátíðinni. MYND/AP

Woody Allen óttast að Scarlett Johanson muni eyðileggja starfsframa sinn með því að fara of mikið út á lífið. Leikstjórinn sem vann með hinni 23 ára Hollywoodstjörnu í myndinni Match Point segir að hún sé bæði falleg og hæfileikarík.

„Johanson er svo falleg og kynþokkafull og svo hæfileikarík ... hún getur gert allt," sagði hann í viðtali við spjallsíðu the New York Post.

„En hún verður að taka réttar ákvarðanir um kvikmyndir... Ég vil ekki lesa um hana í blöðunum með nýjum og nýjum kærasta, eða í meðferð eða að taka pillur."

„Mín skoðun er að hún hafi ekki alltaf valið vel. Hún verður að taka ferilinn alvarlega ... eins og til dæmis Meryl Streep gerði."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.