Lífið

Hamingjuleysi heilasmárra kvenna vinsælt

Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar
Höfundarnir velta fyrir sér lífsins gagni og nauðsynjum.
Höfundarnir velta fyrir sér lífsins gagni og nauðsynjum.
„Ekki jafn klúðurslegt kynlíf, færri meiriháttar rifrildi og aðeins minna óöryggi." Þetta er það sem Helgi Jean Claessen og Hjálmar Jóhannsson höfundar bókarinnar „Konur eru aldrei hamingjusamar af því þær eru með svo litlan heila og kallar rosa pirrandi." lofa að maður fái út úr lestrinum.

Bókin var líklega óvæntasta metsölubókin þessi jólin, en hún var í fjórða sæti yfir mest seldu bækurnar í Pennanum Eymundsson síðustu vikuna fyrir jól. Hún skaut þar með ref fyrir rass bókum á borð við Ösku Yrsu Sigurðardóttur, Himnaríki og Helvíti Jóns Kalmans Stefánssonar og Rimlum hugans eftir Einar Má Guðmundsson.

Helgi segir bókina vera ádeilu á fræga bók Þorgríms Þráinssonar, „Hvernig gerirðu konuna þína hamingjusama", sem kennir mönnum einmitt hvernig á að öðlast „Skemmtilegra kynlíf, fallegri samskipti og meira sjálfsöryggi." Hann segir að grínið sé góðlátlegt, og þeir félagar séu miklir aðdáendur Þorgríms. ,,Við berum lotnafulla virðingu fyrir Þorgrími. Hann er lærimeistarinn og hefur reynsluna sem okkur skortir.

Hugmyndin fæddist eftir að bók Þorgríms kom út, og þurftu þeir því að hafa hraðar hendur við að koma henni frá sér. „Þetta tók svona sirka 10 nætur í skriftum, en það liðu ákkurat þrjár vikur frá fæðingu hugmyndar þangað til við náðum í bókina úr prentsmiðju." segir Helgi, og bætir því við að það hafi ekki verið mikið sofið á meðan á því stóð.

Örfá eintök eru eftir af bókinni í verslun Eymundsson, og rennur hluti af hagnaði við sölu hennar til Langveikra barna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.