Atli og Gísli gera það gott í Skandinavíu Breki Logason skrifar 22. júlí 2008 09:42 Atla og Gísla þekkir fólk víða um skandinavíu MYND/Heimasíða Flügger
Félagarnir úr Flüggerauglýsingunum Atli og Gísli eru ekki aðeins andlit málningarvaranna hér á landi. Í Danmörku heita þeir Henning og Flemming, Hasse og Lasse heita þeir í Svíþjóð og í norðmenn þekkja þá sem Arne og Bjarne. Á Íslandi ganga þeir hinsvegar undir sínum réttu nöfnum og eru starfsmenn fyrirtækisins á Íslandi. Annar þeirra starfar í verslun Flügger í Keflavík og hinn er í Reykjavík. Fyrstu auglýsingarnar birtust hér á landi fyrir um ári síðan og í kjölfarið var ákveðið að fá þá í auglýsingar fyrir allan skandinavíska markaðinn. „Þetta eru sömu auglýsingar en auðvitað með mismunandi texta. Fyrst þegar þetta fór að sjást í Danmörku kom upp mikil umræða um hvort þetta væru íslendingar. Það gekk meira að segja svo langt að Gísli fór í viðtal upp á Rás 2 og svo kom viðtal við þá í Séð og heyrt," segir Halldór Snorrason aðstoðarframkvæmdarstjóri Flügger á Íslandi. Það er auglýsingadeild Flügger í Danmörku sem framleiðir auglýsingarnar. „Við sendum þá bara út til þess að leika og svo koma þeir heim aftur." „Mér finnst þetta mjög skemmtilegt og þetta er svona öðruvísi nálgun en hefur verið," segir Halldór en fyrstu auglýsingarnar pirruðu marga málara. „Þær voru í öðrum anda og tónlistin var önnur. Það má segja að þeir hafi verið aðeins guffalegri og litu ekki út fyrir að vera professional málarar, það pirraði einhverja málara út í bæ sem fannst eins og það væri verið að gera grín að stéttinni. Það var hinsvegar alls ekki ætlunin. Núna eru þeir hafðir aðeins alvarlegri og það kemur mjög vel út." Aðspurður hvort Atli og Gísli geti gengið niður Strikið í Kaupmannahöfn án þess að vera truflaðir segist Halldór ekki vita til þess að reynt hafi á það. „En hinsvegar veit ég að þegar þeir fara í Kringluna þá elta krakkarnir þá alveg. Einnig finna þeir fyrir því að fólk gerir sér ferð í búðirnar til þeirra gagngert til þess að skoða þá, fara þá í einskonar pílagrímsferð til þess að skoða Atla eða Gísla."
Mest lesið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Fleiri fréttir Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Sjá meira