Tveir fréttamenn bandaríska fjölmiðlarisans CBS eru taldir vera í höndum mannræningja í suðurhluta Írak. Lögregla og vitni segja mönnunum hafa verið rænt frá Sultan Palace hótelinu í Basra af að minnsta kosti átta byssumönnum.
CBS fjölmiðlafyrirtækið gaf út yfirlýsingu þar sem sagði að mannanna væri saknað og unnið væri að því að finna þá. Nöfn þeirra voru ekki gefin upp. CBS hvatti aðra fjölmiðla til að vera ekki með getgátur um hverjir þeir væru. Í yfirlýsingunni sagði að CBS væri í sambandi við fjölskyldur þeirra og óskaði eftir að þær fengju frið frá fjölmiðlum.