Enski boltinn

Leto lánaður til Grikklands

Elvar Geir Magnússon skrifar
Leto í æfingaleik með Liverpool.
Leto í æfingaleik með Liverpool.

Sebastian Leto hefur verið lánaður frá Liverpool til grísku meistarana í Olympiakos. Lánssamningurinn er til tveggja ára.

Liverpool neyddist til að lána Leto eftir að honum var synjað um atvinnuleyfi á Englandi. Fleiri lið höfðu áhuga á að fá Leto lánaðan.

„Olympiakos er frábært félag sem berst um alla titla í Grikklandi og er í Meistaradeildinni," sagði Leto sem er 21. árs Argentínumaður sem kom frá félaginu Lanus.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×