Tók þátt í umræðum á CNN 22. maí 2008 12:57 MYND/Hrönn
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók í gær þátt í umræðuþætti á vegum sjónvarpsstöðvarinnar CNN og tímaritanna Time og Fortune. Þátturinn var tekinn upp í Doha í Katar og í honum var rætt um þróun orkumála, hagvöxt í heiminum á komandi áratugum og baráttuna gegn loftslagsbreytingum. Hann er tengdur sérstökum viðtalsþætti sem CNN tók upp á Íslandi fyrir nokkrum vikum og helgaður er viðtali við forseta Íslands og kynningu á árangri Íslendinga í nýtingu hreinnar orku. Fram kemur í tilkynningu forsetaembættisins að umræðurnar í Doha séu liður í þáttaröð sem ber enska heitið Principal Voices og meðal þátttakenda hafa verið vísindamenn, sérfræðingar og forystumenn í viðskiptalífi, en forseti Íslands er fyrsti þjóðhöfðinginn sem boðið er að koma fram í þessum umræðuþáttum. „Auk forseta Íslands sátu fyrir svörum dr. Joseph Adelegan frá Nígeríu, sérfræðingur í umhverfismálum, og Hesham Ismail al Emadi, forstjóri orkuborgar, Energy City, sem verið er að þróa í Katar og víðar um heiminn. Í salnum var einnig fjöldi áhrifamanna frá ýmsum ríkjum, stjórnendur í atvinnulífi og vísindamenn sem báru fram fyrirspurnir og tóku þátt í umræðum. Stjórnendur umræðnanna voru Michael Holmes, fréttamaður frá CNN, og Stephanie Mehta, einn af ritstjórum Fortune," segir í tilkynningunni. Í þættinum var einkum fjallað um hvernig aukin eftirspurn eftir orku getur samrýmst vaxandi hagvexti á komandi áratugum án þess að auka hættuna á loftslagsbreytingum, en gífurleg eftirspurn eftir orku verður eitt helsta viðfangsefni 21. aldarinnar. Ólafur Ragnar rakti árangur Íslendinga við nýtingu hreinnar orku og nefndi ýmis dæmi um tækninýjungar og vísindarannsóknir á Íslandi. Þá lýsti hann verkefnum sem Íslendingar standa að í samstarfi við þjóðir víða um heim, m.a. í Mið-Austurlöndum, Asíu og Afríku. Ísland væri sönnun þess að hægt væri að ná auknum hagvexti og skapa öfluga velferð almennings á grundvelli sjálfbærrar nýtingar orkulinda. Í því fælist mikilvægur boðskapur fyrir heimsbyggðina.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Fleiri fréttir Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Sjá meira